Nú er opið fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum félagsins yfir páskana. Tekið verður á móti umsóknum til og með 9. mars 2007 á skrifstofu félagsins, Sunnubraut 13, sími 4309900.
Dregið verður úr umsóknum 12. mars og haft samband við þá sem fá úthlutað. Eins og með aðra vetrarleigu hefur páskaúthlutun ekki áhrif á punktastöðu félagsmanna.
Orlofshús til útleigu um páska 2007:
Bláskógar 12, Svínadal
Ásendi 10, Húsafelli
Húsasund 15, Hraunborgum
Hús nr.11, Ölfusborgum
Laufásvegur 31, Stykkishólmi
Furulundur 8a, Akureyri
