Formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur óskað eftir formlegum fundi með forsvarsmönnum Sjúkrahúss Akraness. Á þessum fundi mun félagið óska eftir endurskoðun á stofnanasamningi í ljósi þeirra hækkana sem orðið hafa á lægstu launum hjá sveitarfélögunum, en verulegur launamunur er orðinn á sambærilegum störfum á milli sveitarfélaga og ríkis.
Í bréfinu til framkvæmdastjóra Sjúkrahús Akraness er farið fram á að hafnar verði sem allra fyrst viðræður um endurskoðun á gildandi stofnanasamningi milli Verkalýðsfélags Akraness og Heilbrigðisstofnunar Akraness. Jafnframt er skorað á framkvæmdastjóra stofnunarinnar að hann leiti allra leiða til að hægt verði að nálgast þau launakjör sem nú eru í gildi hjá sveitarfélögunum varðandi sambærileg störf. Hægt er að lesa bréfið sem sent var forsvarsmönnum SHA í heild sinni með því að smella á meira.
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi
bt. skrifstofustjóra
Ásgeir Ásgeirsson
Merkigerði
300Akranes Akranesi 1. mars 2006
Efni: Endurskoðun á stofnanasamningi og launabreytingar hjá starfsmönnum sveitarfélaga
Samkvæmt samkomulagi sem undirritað var 11.11. 2005 milli Starfsgreinasambandsins og Samninganefndar ríkisins fh. fjármálaráðherra er gert ráð fyrir að gerðar verði breytingar á stofnanasamningum sem taka eiga gildi 1. maí nk. Gert er ráð fyrir samkvæmt samkomulaginu að 1.5% af launasummunni verði ráðstafað í þessar breytingar.
Það hefur vart farið fram hjá neinum að sveitarfélögin í landinu hafa verið að hækka laun þeirra sem lægst hafa haft launin og sérstaklega hefur verið lögð áhersla á að hækka laun þeirra sem starfa við ummönnun, þótt aðrir láglaunahópar hafi líka fengið leiðréttinu. Þetta hefur gerst með samningum milli Eflingar og Reykjavíkurborgar og svo hafa fylgt í kjölfarið heimildir Launanefndar sveitarfélaga, til sveitarfélaganna, að greiða laun umfram kjarasamninga frá því 29. maí 2005.
Forysta Starfsgreinasambands Íslands hefur á fundi með Samninganefnd ríkisins 3. febrúar sl. vakið athygli á þeim mikla mun sem orðin er á launum starfsmanna ríkisins og starfsmanna sveitarfélaga. Fulltrúar SGS lýstu yfir áhyggjum sínum á þeim fólksflótta sem blasir við úr störfum hjá ríkinu verði ekkert að gert. Fulltrúar fjármálaráðherra vísuðu í heimildir forstöðumanna stofnana til að bregðast við með breytingum á stofnanasamningum og að með samkomulaginu frá 11.11. 2005 hefði verið staðið við samningsákvæðin frá 7. apríl 2004 um samanburð milli hópa.
Með bréfi þessu er farið fram á að hafnar verði sem fyrst viðræður um endurskoðun á gildandi stofnanasamningi milli Verkalýðsfélagsins Akraness og Heilbrigðisstofnunar Akraness. Jafnframt er skorað á framkvæmdastjóra stofnunarinnar að hann leiti allra leiða til að hægt verði að nálgast þau launakjör sem nú eru í gildi hjá sveitarfélögunum varðandi sambærileg störf.
Virðingarfyllst,
________________________
Vilhjálmur Birgisson, formaður
