Nú er opið fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum félagsins í páskavikunni. Um er að ræða vikuleigu frá 28. mars til 4.apríl.
Þar sem alltaf er mikil ásókn í dvöl í orlofshúsum þessa viku er sá háttur hafður á að þeir sem hafa áhuga leggja inn umsókn í pott. Einn pottur er fyrir hvert hús, og hægt er að sækja um á ákveðnum stöðum eða þeim öllum. Dregið er úr pottunum af handahófi, punktastaða skiptir ekki máli og ekki eru dregnir af punktar við úthlutun. Hringt er í þann sem dreginn er út og geti hann ekki nýtt sér vikuna, er dregið aftur. Greiða þarf leigu strax.
Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13 og í síma 4309900. Einnig er hægt að senda nafn, kennitölu og símanúmer á netfangið
