Vissir þú að félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness njóta fjölbreyttra réttinda hjá sjúkrasjóðnum í samræmi við reglugerð hans?
Helstu réttindi eru:
- Sjúkradagpeningar - 80% af meðaltali þeirra heildarlauna, hámark 500.000.
- Fæðingarstyrkur - kr. 150.000.
- Styrkur vegna glasa-, tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar - kr. 100.000.
- Greiðsla vegna Heilsufarsskoðunar (t.d. krabbameinsskoðun, skoðun hjá Hjartavernd, speglanir, tannlæknar) - 50% af kostnaði að hámarki 25.000.
- Gleraugnastyrkur - 50% af reikningi þó að hámarki 50.000. Hægt er að nýta styrkinn vegna barns félagsmanns, 50% af reikningi að hámarki kr. 22.000.
- Heyrnartækjastyrkur - 50% af reikningi að hámarki 40.000.
- Heilsueflingarstyrkur - 50% af reikningi að hámarki 30.000.
- Sjúkraþjálfun/sjúkranudd hjá löggiltum sjúkraþjálfara/sjúkranuddara – 50% af reikningi að hámarki allt að 50.000. Sama rétt eiga elli- og örorkulífeyrisþegar vegna sjúkraþjálfunar/sjúkranudds, þ.e. allt að 50.000 kr. í eitt skipti.
- Dánarbætur vegna fráfalls félagsmanns frá kr. 62.762 til 360.000.
- Sálfræðiþjónusta / fjölskylduráðgjöf – 50% af reikningi að hámarki 50.000.
- Göngugreining - kostnaður greiddur allt að kr. 10.000.
Sjá nánar hér: index.php/sjukrasjodhur/sjukrasjodhur
