Á síðasta aðalfundi var samþykkt að auka verulega við þá styrki sem sjúkrasjóður félagsins býður sínum félagsmönnum. Á fundinum var t.d. samþykkt að taka fimm nýja styrki inn og var það gert vegna góðrar afkomu sjóðsins. Þessi fjölgun á styrkveitingum til félagsmanna er einnig einn liður í því að láta félagsmenn njóta ávinnings af góðri afkomu félagsins.
Þeir styrkir sem nú standa fullgildum félagsmönnum til boða eru eftirfarandi:
- 80% af launum eftir að greiðsluskyldu atvinnurekanda lýkur
- Styrkur vegna glasa-, tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar
- Styrkur vegna sjúkranudds/ sjúkraþjálfunar
- Styrkur vegna krabbameinsskoðunar
- Styrkur vegna skoðunar hjá Hjartavernd
- Styrkur vegna heyrnatækjakaupa
- Styrkur vegna gleraugnakaupa
- Styrkur vegna heilsueflingar
- Útfararstyrkur
- Fæðingarstyrkur
Þessi listi er ekki tæmandi yfir þá styrki sem eru í boði hjá félaginu
Stjórn félagsins skorar á félagsmenn að kynna sér vel hvaða réttindi þeir eiga hjá félaginu og eru einnig hvattir til að hafa samband við skrifstofu félagsins til að fá nánari upplýsingar sé þess þörf.
