Ríkissáttasemjari hefur boðað formann félagsins ásamt þremur fulltrúum úr samráðsnefnd SHA til fundar fimmtudaginn 3. júní. Þar mun samráðsnefndin hitta samninganefnd ríkisins, og fara yfir þá stöðu sem upp er komin eftir að starfsmenn SHA felldu ríkissamninginn á félagsfundi 24 maí.
