Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar mánudaginn 1. nóvember kl. 14.00, vegna kjaradeilu stéttarfélaganna við Íslenska járnblendifélagið. Trúnaðarmenn og formenn þeirra félaga sem eiga aðild að kjarasamningum við Íj ætla að funda kl. 13.00 í húsakynnum Ríkissáttasemjara, til að meta stöðu mála.
