|
Það er með ólíkindum að ekki skuli skoðuð gaumgæfilega sú hugmynd að skattleggja lífeyrissjóðsiðgjöld jafnóðum og þau eru greidd inn í sjóðina, og hætta þar af leiðandi núverandi kerfi sem byggist á því að sjóðsfélagar greiða skatt þegar kemur að lífeyristöku. Ef slíkt yrði gert yrði klárlega hægt að komast hjá þeim miklu skattahækkunum sem þegar hafa verið boðaðar. Í gær birtist afar athyglisverð grein í Morgunblaðinu eftir tryggingastærðfræðingana Benedikt Jóhannesson og Bjarna Guðmundsson þar sem þeir segja að með því að skattleggja lífeyrisgreiðslur strax geti ríkið náð allt að 30-35 milljörðum króna í ríkissjóð á ári. Þeir tala einnig um að hugsanlega sé þetta ein besta leiðin til að leysa hina brýnu þörf á skatttekjum án þess að valda heimilum búsefjum með hækkunum á álögum. Nýr liður í skattahlið fjárlaga hefur verið kynntur og ber beitið Orku-, umhverfis- og auðlindagjöld en þeim er ætlað að skila inn 16 milljörðum kr. á næsta ári. Ef þessi skattur verður að veruleika er ljóst að starfsöryggi starfsmanna stóriðjufyrirtækjanna Norðurál, Elkem Ísland og Sementsverksmiðjunnar verður stefnt í stórhættu. Viðtal var við formann félagsins á vef Skessuhorns í dag og birtist það í heild sinni hér að neðan: “Þær tillögur sem nú liggja fyrir varðandi orku- og kolefnisskatta á stóriðjufyrirtæki gerir það að verkum að það er verið að leggja störf þeirra sem starfa við stóriðju hér á landi í stórhættu,” segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness í samtali við Skessuhorn. Eins og kunnugt er kynnti fjármálaráðherra í gær fjárlagafrumvarp næsta árs og er þar gert ráð fyrir verulegum skattaálögum á stóriðjuna sem ekki hefur verið til staðar hingað til. “Á okkar starfssvæði er þetta einkum Grundartangasvæðið þar sem þúsund störf eru nú sett í fullkomna hættu. Stóriðjan þar beinlínis heldur lífinu í samfélaginu á Akranesi og nágrannabyggðum. Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga gæti þessi skattur á Norðurál á Grundartanga numið á sjötta milljarði króna, hjá Elkem Ísland vel á annan milljarð og á Sementsverksmiðjuna einhver hundruð milljóna. Það er morgunljóst að Sementsverksmiðjan og Elkem Ísland hafa enga burði til að taka slíka skattlagningu á sig og því er eins og ég sagði verið að ógna framtíð þessara fyrirtækja og störfum fólksins.” |
|
Vilhjálmur segir að þessu til viðbótar séu kjarasamningur starfsmanna Norðuráls lausir um næstu áramót. “Ef þessi áform ríkisstjórnarinnar lenda á fyrirtækinu er verið að setja kjarasamningsgerðina í algjört uppnám. Okkar tillaga er sú að það eigi að ná inn sköttum úr stóriðju í gegnum tekjuskatta starfsmanna. Þar fá ríkið og sveitarfélög 37% af laununum og ætti að sjá hag sinn í að svo verði áfram í stað þess að ógna tilveru fyrirtækjanna. Það er með ólíkindum að horfa upp á vinnubrögð þessarar ríkisstjórnar þar sem er verið að ógna starfsöryggi allra sem starfa í stóriðju. Ég vil því skora á ríkisvaldið að endurskoða þessar tillögur strax.” Vilhjálmur vill benda ríkisstjórn á skoða gaumgæfilega að skattleggja lífeyrisgreiðslur jafnóðum. “Það gæti skilað ríkissjóði 30-40 milljörðum á ári. Þetta myndu heimili landsins ekki finna fyrir á einn eða neinn hátt nú. Á þeirri forsendu á að skipa hóp sérfræðinga til að skoða það að skattleggja lífeyrisgreiðslurnar strax og hætta þessari endemis vitleysu. Stjórnvöld verða að átta sig á því að ofan á minni veltu og verkefni í þjóðfélaginu eru stjórnvöld að hækka skattaálögur svo mikið bæði á einstaklinga og fyrirtæki að fólki er einfaldlega að blæða út,” sagði Vilhjálmur að lokum. |

Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í gær er gert ráð fyrir að skattar sem lagðir verða á einstaklinga á næsta ári hækki um 36,8 milljarða kr. Skattar á vörur og þjónustu eiga að hækka um tæplega 31 milljarð kr. Þar af hækkar virðisaukaskattur um tæpa 10 milljarða kr. Það er alveg ljóst að heimili þessa lands munu á engan hátt þola þá auknu skattbyrði sem fyrirhuguð er á næsta ári og ljóst að ef ekki verður breyting á mun heimilum þessa lands blæða endanlega út.