Formaður félagsins hefur að undanförnu verið að funda með forstjóra og starfsmannastjóra HB-Granda vegna ágreinings í Fiskimjölsverksmiðjunni, og hefur sá ágreiningur staðið yfir í mörg ár, og því miður hefur ekki tekist að leysa hann. Ágreiningurinn sem um ræðir lýtur að túlkun á kjarasamningi starfsmanna. Er það von Verkalýðsfélags Akraness að það takist mjög fljótlega ná samkomulagi við forsvarsmenn HB-Granda um lokaniðurstöðu í þessu leiðindamáli, og reyndar bendir allt til að það verði skrifað undir samkomulag milli deiluaðila í næstu viku.
