Formaður félagsins hefur verið að kanna hvernig starfsmenn sem starfa í stóriðjunni á Grundartanga koma útúr nýju samkomulagi sem verkalýðshreyfingin gerði við Samtök atvinnulífsins í gær.
Starfsmenn sem vinna í vaktarvinnu í Norðuráli munu til að mynda hækka í launum um rétt rúmar 25 þúsund krónur á mánuði. Ástæðan fyrir því að vaktarvinnumenn Norðuráls hækka umfram 15 þúsund krónurnar í taxtaviðaukanum er að taxtaviðaukinn skapar grunn fyrir yfirvinnu- og vaktarálag.
Vaktarálagið hjá Norðuráli er 37.62% þannig að hækkun á grunnlaunum um 15 þús á mánuði gerir það að verkum að vaktarálagið hækkar um 5.643 kr. á mánuði. Taxtaviðaukinn skapar líka grunn til hækkunar á yfirvinnu og hefur það einnig áhrif á launakjör Norðurálsmanna þar sem þeir skila 26 föstum yfirvinnutímum á mánuði. Sú hækkun nemur 4.446 kr á mánuði. Samtals hækka því byrjunarlaun hjá vaktavinnumanni Norðuráls um 25.089 krónur á mánuði.
Vaktavinnumenn Íslenska járnblendifélagsins munu hækka um 20.643 á mánuði. Skýring á því að þeir hækka ekki um það sama og vaktavinnumenn Norðuráls er sú að þeir skila ekki fastri yfirvinnu eins og Norðurálsmenn.
