Í dag verður haldinn samningafundur hjá ríkissáttasemjara vegna kjarasamnings Norðuráls. Nú eru liðnir heilir 2 mánuðir frá því að kjarasamningurinn rann út og þrátt fyrir umtalsverðar tilraunir til að ná fram viðunandi nýjum samningi þá hefur það ekki tekist til þessa. Enn ber töluvert á milli deiluaðila og ekki er útilokað að það muni draga til tíðinda á fundinum í dag því væntanlega munu forsvarsmenn fyrirtækisins leggja fram tilboð til lausnar þessari deilu.
Forsvarsmenn Norðuráls hafa nýverið opnað á að miða launahækkanir við launavísitölu heildarlauna sem birtist einu sinni á ári. Formaður félagsins hefur verið að skoða þennan möguleika en hefur hafnað því að miða við þessa launavísitölu enda birtist hún einungis einu sinni á ári og því til viðbótar er hún að gefa mun minna en launavísitala launa sem Hagstofan birtir í hverjum mánuði. Formaður hefur komið þeim skilaboðum til forsvarsmanna Norðuráls að ef það á að miðja við launavísitölu þá verði það að vera sú sem birtist í hverjum mánuði en alls ekki þessi sem birtist einu sinni á ári. Núna er því boltinn hjá forsvarsmönnum Norðuráls en þeir hafa ekki tekið vel í að miða við launavísitölu launa sem birtist í hverjum mánuði og hafa sagt að ef það yrði gert þyrfti að miða við ca 80% af launavísitölunni því inní launavísitölu launa sem birtist í hverjum mánuði séu starfsaldurshækkanir og annað slíkt þeir geta því ekki sætt sig við að miða við 100% af launavísitölunni. Formaður hefur hafnað að miða einungis við 80% því það sé ljóst að starfsaldurshækkanir séu alls ekki 20% af launavísitölunni. Með öðrum orðum þá hefur VLFA hafnað því að miða við þessa launavísitölu heildarlauna enda gefur hún minna og einnig hefur félagið hafnað að miða við 80% af launavístölu launa sem birtist í hverjum mánuði, en vonandi náum við að komast í gegnum þennan ágreining en eins og staðan er núna getur brugðið til beggja vona. En VLFA mun standa fast fyrir nú sem hingað til.
