Samninganefnd Starfsgreinasambandsins hefur verið boðuð til fundar á morgun klukkan 17 í húsakynnum ríkissáttasemjara. Í samninganefnd SGS eru formenn aðildarfélaga sambandsins, alls 27 formenn utan við aðildarfélög Flóans. Kynnt verður á þessum fundi drög að nýjum samningi milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands en í seinni partinn í dag náðist samkomulag sem samningarnefnd SGS telur að sé grundvöllur að samningi. Það mun því koma í hlut þessara 27 formanna að ákveða hvort gengið verði frá samningi á þeim forsendum sem kynntar verða á morgun, en eins og staðan er nú er alls óvíst að spá um niðurstöðu þeirra fundar.
