Sjávarútvegsráðherra hittir sjávarútvegsnefnd í dag kl. 12:30
Sjávarútvegsráðherra hittir sjávarútvegsnefnd í dag kl. 12:30
Formaður félagsins hefur heimildir fyrir því að Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra muni hitta sjávarútvegsnefnd í dag kl. 12:30. Væntanlega mun reglugerð sem fyrrverandi sjávarútvegsráherra gaf út 27. janúar um auknar hvalveiðar verða til umræðu á þeim fundi.
Það er líklegt að sjávarútvegsráðherra muni tilkynna í kjölfarið hvort hann láti ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra standa varðandi heimild til aukinnar hvalveiða.
Eins fram kom hér á heimasíðunni þá var haldinn opinn bæjarmálafundur þann 5. febrúar sl. um hvalveiðar með öllum þingmönnum NV kjördæmis og einnig mætti sjávarútvegsráðherra á þann fund. Ekki fór á milli mála að víðtækur stuðningur var á meðal fundarmanna um að reglugerðin frá 27. janúar um auknar hvalveiðar myndi standa óhögguð.
Það liggur ljóst fyrir að ef hvalveiðar verða heimilaðar á grundvelli fyrirliggjandi reglugerðar þá mun það verða umtalsverð innspýting inní atvinnulífið hér á Vesturlandi enda er talið að auknar hvalveiðar geti skapað allt að 300 störf og veitir ekki af þegar yfir 500 manns eru án atvinnuá Vesturlandi í dag.
