Nú er Sjómannadagurinn að renna upp og af því tilefni fengu leikskólabörn á Akranesi glaðning frá sjómannadeild Verkalýðsfélags Akraness í morgun. Þar voru á ferðinni félagarnir Tómas Rúnar Andrésson og Sigmundur Lýðsson sem gáfu yfir 400 börnum á öllum leikskólum bæjarins harðfisk.
Aðrir dagskrárliðir tengdir sjómannadeginum eru þeir að eins og venjulega munu Slysavarnakonur á Akranesi halda upp á sjómannadaginn með glæsilegri kaffisölu í Jónsbúð sunnudaginn 2. júní milli kl. 13:30 og 16:00.
Sjómannasunnudaginn sjálfan verður athöfn við minnisvarða um drukknaða og týnda sjómenn kl. 10:00 í kirkjugarðinum.
Kl. 11:00 verður Sjómannamessa í Akraneskirkju þar sem aldraðir sjómenn verða heiðraðir. Að messu lokinni verður gengið að Akratorgi og blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna. Þessar athafnir eru kostaðar og í umsjón Verkalýðsfélags Akraness.
