Klukkan þrjú í nótt var skrifað undir nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eftir 10 vikna verkfall. Á þeirri forsendu boðar sjómannadeild Verkalýðsfélags Akraness til mjög svo áríðandi kynningarfundar um nýgerðan kjarasamning í dag kukkan 17:00 á Gamla kaupfélaginu.
Á fundinum mun formaður fara ítarlega yfir nýgerðan kjarasamning og eftir fundinn geta fundarmenn kosið um hann.
Það er afar mikilvægt að sem flestir sjómenn sjái sér fært að mæta á kynningarfundinn!
****Uppfært kl. 16:00
Kjarasamningurinn er nú aðgengilegur hér.
Kaupskráin er aðgengileg hér.
