Sjómannadeild Verkalýðsfélags Akraness boðar sjómenn til fundar í dag klukkan 14:00 á Gamla kaupfélaginu.
Fundarefnið er nýgerður kjarasamningur Sjómannasambands Íslands við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að umtalsverðar gremju gætir á meðal sjómanna með nýgerðan kjarasamning. Það er mikilvægt að sjómenn mæti á fundinn þar sem farið verður yfir samninginn og þá gremju sem ríkir hjá sjómönnum.
