Verkalýðsfélag Akraness vill minna sjómenn á aðalfund Sjómannadeildar Verkalýðsfélags Akraness á morgun. Fundurinn hefst kl. 14:00 og verður hann í fundarsal félagsins að Sunnubraut 13.
Á fundinum á morgun verður nýgerður kjarasamningur sjómanna til umfjöllunar. Samningurinn er framlenging á síðast gildandi samningi með þeim breytingum sem fram koma í þessum samningi.
Atkvæði um kjarasamninginn verða greidd hjá hverju aðildarfélagi fyrir sig og á atkvæðagreiðslu að ljúka fyrir áramót. Í upphafi næsta árs verða atkvæði síðan talin sameiginlega hjá aðildarfélögum SSÍ um samninginn.
Verði samningurinn samþykktur hækkar kauptrygging og launaliðir frá 1. janúr 2009. Hægt er að nálgast samninginn og kaupgjaldsskrána á heimasíðu Sjómannasambandsins http://www.ssi.is/
