Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag um allt land. Í hátíðarguðþjónustu í Akraneskirkju í morgun hlaut Hallgrímur Þór Hallgrímsson heiðursmerki fyrir vel unnin störf, en Hallgrímur sinnti sjómennsku allan sinn starfsaldur.
Að aflokinni guðsþjónustu var haldið að Akratorgi þar sem blómsveigur var lagður að minnismerki sem þar stendur um týnda sjómenn. Frekari upplýsingar um dagskrá sjómannadagsins á Akranesi má finna hér.
Stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Akraness færa sjómönnum landsins og fjölskyldum þeirra innilegar hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins.
