Þjónusta Verkalýðsfélags Akraness við félagsmenn sína er margvísleg og sem dæmi stendur hin árlega skattframtalsaðstoð yfir þessa dagana. Í gegnum árin hefur félagið boðið upp á þessa þjónustu fyrir sína félagsmenn og hefur hún svo sannarlega sannað gildi sitt en á annað hundrað manns nýta sér þessa þjónustu árlega.
Það er mjög jákvætt fyrir stéttarfélag að geta boðið upp á þessa þjónustu enda sést að hún fellur í góðan jarðveg á meðal félagsmanna þó vissulega sé mikið annríki þá daga sem hún stendur yfir.
Hægt er að panta tíma í framtalsaðstoð á skrifstofu félagsins eða í síma 430-9900.
