Skrifað verður undir nýjan fyrirtækjasamning við eigendur Fangs ehf. á mánudaginn kemur. Formaður félagsins kynnti væntanlegan samning fyrir starfsmönnum á miðvikudaginn var. Virtust starfsmenn almennt vera nokkuð sáttir við samninginn þó vissulega hefði starfsmenn og stéttarfélagið viljað ná örlítið lengra. Í þessum fyrirtækjasamningi náðist að tryggja flest þeirra kjaraatriða sem starfsmenn og stéttarfélagið lögðu hvað mestu áherslu á. Þau kjaraatriði sem náðist að tryggja í þessum nýja fyrirtækjasamningi eru t.b, launatafla, vinnutími, bónus, orlofs og desemberuppbætur. Einnig fá starfsmenn eingreiðslu sem nemur nokkrum tugum þúsunda. Allt eru þetta kjaraatriði sem eru mun betri en þekkjast í kjarasamningi á hinum almenna vinnumarkaði. Heildarkostnaðaráhrif samningsins er með sambærilegum hætti og samningar Íslenska járnblendifélagsins og Klafa gáfu eða um 21% á samningstímanum. Kosið verður um nýjan fyrirtækjasamning fljótlega í næstu viku. Verkalýðsfélag Akraness vill þakka trúnaðarmanni Fangs kærlega fyrir mjög svo góða samvinnu við gerð þessa samnings.
Skrifað verður undir nýjan fyrirtækjasamning við Fang ehf. á mánudaginn kemur
Skrifað verður undir nýjan fyrirtækjasamning við Fang ehf. á mánudaginn kemur
