Stéttarfélög á Akranesi leita að ráðgjafa í fullt starf til að starfa á sviði starfsendurhæfingar. Hlutverk ráðgjafa er að styðja og hvetja einstaklinga til að viðhalda og efla virkni til vinnu. Aðsetur verður á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness, Sunnubraut 13 á Akranesi.
Helstu verkefni ráðgjafans verða:
- Stuðningur og ráðgjöf fyrir einstaklinga
- Upplýsingaöflun og mat skv. viðurkenndum aðferðum
- Umsjón, eftirfylgni og leiðsögn varðandi endurhæfingaráætlanir einstaklinga, í samstarfi við fagaðila
- Náin samvinna við atvinnurekendur og stéttarfélög með það að markmiðið að auka starfshæfni og varðveita vinnusamband einstaklinga á vinnumarkaði
Kröfur um hæfni
Helstu hæfniskröfur til ráðgjafa eru eftirfarandi:
- Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Góð þekking á vinnumarkaði og nærsamfélagi
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og menntavísinda eða sambærileg menntun
- Þekking og/eða reynsla á sviði ráðgjafar æskileg
- Sveigjanleiki og færni til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Tungumálakunnátta, enska og eitt Norðurlandamál
- Geta til að koma frá sér efni í ræðu og riti
Starf ráðgjafans er samstarfsverkefni milli stéttarfélaganna og Starfsendurhæfingarsjóðs. Nánari upplýsingar um starf ráðgjafa og starfsemi Starfsendurhæfingarsjóðs er að finna á heimasíðu sjóðsins www.virk.is. Til að tryggja þekkingu og símenntun ráðgjafans mun hann fá sérstaka þjálfun sem skipulögð er af Virk, Starfsendurhæfingarsjóði.
Umsókn um starfið skal skilað fyrir kl 16:00, mánudaginn 11. apríl nk. á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness, Sunnubraut 11 í lokuðu umslagi merktu VIRK – Ráðgjafi í starfsendurhæfingu.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á netfanginu
