Samkvæmt upplýsingum sem Verkalýðsfélag Akraness hefur fengið frá Vinnumálastofnun þá hefur starfsmannaleigum fjölgað um 10 frá því að lögum um frjálst flæði launafólks frá ríkjum ESS var aflétt 1. maí sl.
Fyrir 1. maí voru 21 starfsmannaleiga skráð, en í dag eru þær orðnar 31 sem er eins og áður sagði fjölgun um 10.
Fyrir 1. maí voru 344 starfsmenn sem voru ráðnir til fyrirtækja í gegnum starfsmannaleigur. Frá 1. janúar hafa 1068 starfsmenn komið hingað til starfa í gegnum starfsmannaleigur sem er fjölgun uppá 724 starfsmenn. Vinnumálastofnun telur að milli 10 til 11% þeirra nýju erlendu starfsmanna sem hingað hafa komið til starfa séu í gegnum starfsmannaleigur.
Einnig kom fram hjá Vinnumálastofnun að um 100 nýir erlendir starfsmenn koma hingað til starfa í hverjum mánuði í gegnum starfsmannaleigu. Það kom líka fram að um 20 starfsmenn séu afskráðir í hverjum mánuði sem geri að nettó fjölgun á starfsmönnum sem ráðnir eru í gegnum starfsmannaleigur eru í kringum 80 í hverjum mánuði.
Í Blaðinu í dag er viðtal við félagsmálaráðherra þar sem hann segir orðrétt:
"Alþýðusamband Íslands eru heildarsamtök verkalýðsfélaganna. Þegar ákvörðunin var tekin var haft samband við ASÍ og Samtök atvinnulífsins. Bæði samtökin studdu ákvörðunina, einkum með það fyrir augum að draga úr starfsmannaleigum sem milliliði fyrir fólkið sem hingað kom"
Félagsmálaráðherra og forsvarsmenn ASÍ studdu ákvörðunina um frjálst flæði launafólks frá ríkjum ESS, einkum með það fyrir augum að draga úr starfsmannaleigum sem milliliði fyrir erlenda starfsmenn eins fram kom í viðtali við ráðherra í Blaðinu í dag.
Það er alveg ljóst að sú von um að starfsmannaleigum mynda fækka í kjölfar á því að takmörkunum á frjálsri för launafólks frá ríkjum ESS hefur alls ekki gengið eftir eins og tölur frá Vinnumálastofnun sanna.
Í lögum um starfsmannaleigur er ekki kveðið á um að starfsmannaleigur þurfi að skila inn ráðningarsamningum inn til Vinnumálastofnunar af þeim starfsmönnum sem koma hingað til starfa í gegnum starfsmannaleigur. Hins vegar getur Vinnumálastofnun kallað eftir ráðningarsamningum ef svo ber undir.
Atvinnurekandi sem ræður erlendan starfsmanna í beint ráðningarsamband frá ríkjum ESS þarf að skila inn til Vinnumálastofnunar ráðningarsamningi þar sem sýnt er fram á að laun og önnur starfskjör séu tryggð samkvæmt íslenskum lögum og kjarasamningum. Eins og áður sagði þarf ekki að skila inn ráðningarsamningi ef starfsmaður er ráðinn í gegnum starfsmannaleigu. Með öðrum orðum þá er minna eftirlit með starfsmönnum sem koma í gegnum starfsmannaleigur heldur en þeirra sem ráðnir eru í beint ráðningarsamband. Það er undarlegt að tilkynningaskylda starfsmannaleigna sé minni í ljósi þess að mönnum hefur verið tíðrætt um að fleiri brot séu framin á launakjörum erlendra starfsmanna, sem koma í gegnum starfsmannaleigur.
Hægt er að sjá skiptingu á þeim starfsmönnum sem starfa á vegum starfsmannaleigna eftir skráðum starfsheitum með því að smella á meira og einnig hvaða starfsmannaleigur eru skráðar hjá Vinnumálstofnun
Skráðar starfsmannaleigur
| Nafn | Land | Tengiliður | Skráðir starfsmenn |
|---|---|---|---|
| 2b ehf | Ísland | Eiður Eiríkur Baldvinsson | 53 |
| Alhjúkrun ehf | Iceland | Dagmar Jónsdóttir | 34 |
| Assista Iceland | Iceland | Birgit Raschhofer | 6 |
| Connway ltd., útibú á Íslandi | United Kingdom | Dennis Gilijamse | 23 |
| Epalmo Europa Lda | Portugal | Rui Vieira | 142 |
| Ethnic Care ApS | Denmark | Sigríður Þorsteinsdóttir | 1 |
| F.H Verk ehf | Ísland | Claudia Vennemann | 51 |
| Foral Scandic s.r.o | Czech Republic | Eyþór Jósepsson | 25 |
| GM Staffing ehf. | Iceland | Johnny Mortensen | 2 |
| Holtan Industrier AS | Norway | Gunnhildur Harpa Hauksdóttir | 5 |
| ID Geotermia, útibú á Íslandi | Hungary | Baldur Gylfason | 5 |
| Intjob (Framkvæmdaráð) | Iceland | Stefán Kjærnested | 16 |
| Jobzone Bygg & Anlegg AS | Norway | Eric Roggenkamp | 6 |
| Kleomis | Lithuania | Kleopas Minelga | 27 |
| Kraftafl ehf | Iceland | Georg Georgiou | 7 |
| Liðsinni ehf. | Iceland | María Bragadóttir | 20 |
| MCR Building Services Ltd | Ireland | Michael Coffey | 24 |
| NETT - Nova Emp. de Trabalho Temporário, Lda. | Portugal | Fernando Costa | 150 |
| RAIS Vinnumiðlun | Iceland | Hjálmar Kjartansson | 25 |
| Rimec Ltd | Ireland | Mark Lundgren | 37 |
| Select Serviços -I | Portugal | Fernando Jorge Costa Veran Sousa | 115 |
| UAB Marius ir partnerai | Lithuania | Vytautas Lipskas | 15 |
| Útrás ehf | Iceland | Sigurður G. Ringsted | 17 |
| Voot Import - Export ehf | Iceland | Óskar Þórðarson | 65 |
Starfsmannaleigur sem hafa ekki enn skráð neina starfsmenn
| Nafn | Land | Tengiliður |
|---|---|---|
| Ethnic Care Island ehf. | Iceland | Gunnar J. Magnússon |
| Foral Ísland ehf. | Ísland | Eyþór Ragnar Jósepsson |
| MG Contracts EHF | Iceland | Thomas James Mc Gowan |
| Oceanwide Haraship Danmark | Denmark | Grímur Agnarsson |
| People Select Aviation Limited | Bretland | Magnús Már Harðarson |
| Temporary Work Company | Iceland | Jón Ingi Jóhannesson |
| Transwork Polish manning office | Poland | Ingi Torfi Sigurðsson |
| Starfsheiti og aldur | |||
| Starfsmannaleigur - skipting eftir skráðum starfsheitum | |||
| Fjöldi | hlutfall | ||
| Verkamenn | 369 | 35,2% | |
| Trésmiðir | 201 | 19,2% | |
| Hjúkrunafræðingar | 69 | 6,6% | |
| Vinnuvélastj. Vörubílstj. | 68 | 6,5% | |
| Rafsuðumenn | 48 | 4,6% | |
| Blikksmiðir | 47 | 4,5% | |
| Pípulagningamenn | 43 | 4,1% | |
| Sérh. Byggingaverkamenn | 41 | 3,9% | |
| Kjötiðnaðarmenn | 39 | 3,7% | |
| Rafvirkjar | 36 | 3,4% | |
| Steypu- og járnamenn | 24 | 2,3% | |
| Járnsmiðir | 16 | 1,5% | |
| Kranastjórar | 15 | 1,4% | |
| Málarar | 10 | 1,0% | |
| Sjúkraliðar | 6 | 0,6% | |
| Aðstoðarmenn rafvirkja | 5 | 0,5% | |
| Birgðaverðir | 4 | 0,4% | |
| Flokkstjórar | 4 | 0,4% | |
| Múrarar | 2 | 0,2% | |
| Gólflagningamenn | 2 | 0,2% | |
| 1049 | |||
| Aldursskipting starfsmannaleiga | |||
| Fjöldi | Hlutfall | ||
| 18-19 | 8 | 1% | |
| 20-29 | 247 | 23% | |
| 30-39 | 358 | 34% | |
| 40-49 | 284 | 27% | |
| 50-59 | 150 | 14% | |
| 60-66 | 21 | 2% | |
| Samtals | 1068 | ||
