Starfsmenn Akraneskaupstaðar eru hvattir til að fjölmenna á áður auglýstan kynningarfund um nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fundurinn er haldinn í dag kl. 17 í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum og hægt verður að kjósa um samninginn að kynningu lokinni.
Áfram verður hægt að kjósa á opnunartíma skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13 til kl. 12:00 föstudaginn 12. febrúar.
