Nú rétt í þessu lauk talningu atkvæða í kosningu um kjarasamning Verkalýðsfélags Akraness og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var þann 11. júlí síðastliðinn.
Á kjörskrá voru 149 manns. Greidd atkvæði voru 52 talsins eða tæp 35%. Já sögðu 50 eða 96,2%. Nei sögðu 2 eða 3,8%. Enginn seðill var auður eða ógildur.
Samningurinn telst því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða og tekur því gildi frá 1. maí 2014.
