Nýtt samkomulag um launalið kjarasamnings verður kynnt fyrir starfsmönnum Norðuráls næstu daga og eru starfsmenn hvattir til að mæta á kynningarfund, kynna sér efni samningsins og taka afstöðu til samningsins með kosningu. Sérstaklega er vakin athygli á því að nú er búið að bæta við kynningu fyrir starfsmenn Kerfóðrunar sem boðað hefur verið til í kvöld kl. 19:30 á vinnustaðnum.
Formaður félagsins mun sjá um kynningarnar og verða þær sem hér segir:
- Mánudaginn 26. september kl. 16 á Gamla Kaupfélaginu
- Mánudaginn 26. september kl. 19:30 fyrir starfsmenn í Kerfóðrun á vinnustaðnum
- Þriðjudaginn 27. september kl. 17 á Gamla Kaupfélaginu
- Miðvikudaginn 28. september kl. 17 á Gamla Kaupfélaginu
- Fimmtudaginn 29. september kl. 17 á Gamla Kaupfélaginu
Hægt verður að kjósa um samninginn að aflokinni kynningu og einnig verður hægt að kjósa á vinnustaðnum á skrifstofu aðaltrúnaðarmanns frá og með deginum í dag.
Þeir sem komast ekki á kynningar eða vilja fá nánari upplýsingar um innihald samningsins skulu vera óhræddir við að hringja í formann VLFA hvenær sem er, en sími formanns er 865-1294.
