Formaður félagsins situr nú tveggja daga stefnumótunarfund á vegum ASÍ á Selfossi um málefni lífeyrissjóðanna. Fundurinn hófst í gærmorgun með þátttöku fulltrúa frá öllum 53 aðildarfélögum ASÍ.
Á fundinum heldur formaður hátt á lofti kröfum um aukið lýðræði í stjórnum lífeyrissjóða. Þetta eru sjónarmið bæði stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Akraness og 71% þeirra sem tóku þátt í könnun Capacent Gallup á viðhorfi fólks til breytinga á fyrirkomulagi við stjórnarval í lífeyrissjóðunum.
Í máli formanns á fundinum í gær kom m.a. fram að hann telur mikilvægt að lífeyrissjóðirnir dragi úr þeim áhættufjárfestingum sem þeir hafa tekið þátt í á liðnum árum. Skv. upplýsingum frá Bjarna Þórðarsyni, tryggingastærðfræðingi þá var meðalraunávöxtun sjóðanna síðustu 10 ár um 2%. Að mati formanns er það ekki viðunandi ávöxtun sé litið til þeirrar staðreyndar að áhættulaus ríkisskuldabréf bera raunávöxtun upp á 3,7-4% að meðaltali.
Niðurstöður úr hópavinnu fyrri fundardagsins voru á þá leið að eindregið ætti að auka lýðræði í stjórnum lífeyrissjóðanna.
