Stjórn og trúnaðarráð kom saman til fundar á mánudaginn var. Á fundinum voru nokkur mál til umfjöllunar. T.d gerði formaður félagsins grein fyrir þeim málum sem rædd voru á formannafundi Starfsgreinasambandsins sem haldinn var á Ísafirði í síðustu viku. Málefni erlends vinnuafls var einnig til umræðu á fundinum.
Það kom skýrt fram hjá þeim sem eiga sæti í trúnaðarráði félagsins að þeir hafa verulegar áhyggur af þeirri gríðarlegu fjölgun sem hefur orðið hefur á erlendu vinnuafli á íslenskum vinnumarkaði á undanförnum mánuðum.
Verkalýðsfélag Akraness hefur ítrekað bent á að félagsleg undirboð og svört atvinnustarfsemi hefur stóraukist eftir að takmörkunum á frjálsu flæði launafólks frá hinum nýju aðildarríkum EES var aflétt 1.maí sl.
Á fundinum voru einnig valdir þeir fulltrúar sem munu eiga sæti á ársfundi ASÍ sem haldinn verður 26. og 27. október nk. Þeir aðilar sem sitja fyrir hönd Verkalýðsfélags Akraness eru: Vilhjálmur Birgisson, Þórarinn Helgason, Björgólfur Einarsson og Tómas Rúnar Andrésson.
