Stjórn og trúnaðarráð félagsins kom saman til fundar á þriðjudaginn sl. Fjölmörg atriði voru til umræðu á fundinum, en helstu málin sem voru til umræðu voru eftirfarandi:
- Ársfundur lífeyrissjóðs Festu
- Komandi aðalfundur
- Afkoma félagsins
- Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðsins
- Könnun sem Starfsgreinasambandið lét framkvæma
- Önnur mál
Stjórn og trúnaðarráð félagsins var afar ánægt með útkomu félagsins í skoðanakönnun sem SGS lét framkvæma á viðhorfi félagsmanna til starfsemi félagsins. En eins og fram hefur komið þá lenti VLFA í öðru sæti af öllum stéttarfélögum innan SGS. Einnig voru trúnaðarráðsmenn mjög ánægðir með þannig mikla viðsnúning sem orðið hefur í rekstri félagsins sem og öllu félagsstarfi hjá VLFA. Það var líka almenn ánægja með að góð afkoma sjúkrasjóðsins skuli skila sér strax í auknum styrkjum til handa félagsmönnum.
