Fundi í stjórn og trúnaðarráði félagsins sem átti að vera á mánudaginn 23. apríl hefur verið frestað til þriðjudaginn 24. apríl kl. 20:00
Á fundinum verður farið yfir komandi ársfund lífeyrissjóðs Festu og sem dæmi þá verður gengið frá kjöri á fulltrúum á ársfundinn.
Einnig verður til umræðu aðalfundur félagsins sem haldinn verður laugardaginn 28. apríl kl 13:00 en skrifstofa félagsins er að leggja lokahönd á undirbúning fyrir aðalfundinn. Að lokum mun formaður fara yfir dagskrá vegna hátíðarhaldanna á 1. maí og einnig gera ráðinu grein fyrir þeim málum sem starfsmenn félagsins hafa verið að vinna að og lúta að réttindamálum félagsmanna.
