Jólatrúnaðarráðsfundur var haldinn í gær og hófst fundurinn kl. 18.00. Formaður félagsins fór yfir það helsta sem gerst hefur í starfsemi félagsins á árinu sem nú er að líða.
Fram kom í máli formanns að árið hefur verið Verkalýðsfélagi Akraness afar hagstætt, t.d. hefur verið gríðarleg fjölgun í félaginu á liðnu ári. Einnig kom fram hjá formanni að mjög erilsamt hefur verið hjá starfsmönnum félagsins á þessu ári og greinilegt að félagsmenn nýta sér þjónustu félagsins í auknu mæli, sem er afar jákvætt.
