Stjórnarfundur verður í kvöld hjá aðalstjórn félagsins. Á fundinum í kvöld verður lögð lokahönd á undirbúning fyrir aðalfundi deildanna. En eins og lög félagsins kveða á um þá á að vera búið að halda aðalfundi deildanna fyrir janúarlok. Þegar endanleg niðurröðun á fundartíma hverjar deildar fyrir sig liggur fyrir þá verður það auglýst hér á heimasíðunni sem og í Póstinum og Skessuhorni.
Einnig er verið að leggja lokahönd á dagbók sem jafnframt gildir sem félagsskírteini og verður dagbókin send út til félagsmanna fyrir mánaðarlok ásamt iðgjaldayfirliti og skorar stjórn félagsins á félagsmenn að bera yfirlitið saman við launaseðla sína. Vakni einhverjar spurningar hjá félagsmönnum þá endilega hafið samband við skrifstofu félagsins.
