Stjórnir orlofs- og sjúkrasjóðs funduðu í gærkveldi. Það liggur þónokkuð fyrir hjá orlofsstjórn þar sem töluverðar endurbætur eru framundan á orlofshúsum félagsins.
Ákveðið hefur verið að stækka svalir á þremur íbúðum sem félagið á að Furulundi 8 á Akureyri og hefjast þær framkvæmdir í haust. Einnig var ákveðið að mála sumarhúsin í Húsafelli og í Svínadal og stefnt er að þeim framkvæmdum verði lokið fyrir sumarúthlutun 15. maí.
Þessu til viðbótar hefur verið ákveðið að skipta um eldúsinnréttingar í Hraunborgum og Svínadal og stefnt er að því að þeim framkvæmdum verði einnig lokið fyrir 15. maí.
Eins og áður sagði þá fundaði stjórn sjúkrasjóðs einnig í gærkveldi og liggur ljóst fyrir að félagið mun taka inn allavega þrjá nýja styrki á næsta aðalfundi, sem verður um miðjan apríl.
Það er alveg ljóst að gríðarleg umskipti hafa orðið á rekstri félagsins á þeim þremur árum sem ný stjórn tók við og sést það best á þeirri stórauknu þjónustu nú er verið að veita félagsmönnum.
Markmið núverandi stjórnar hefur ávallt verið skýrt, það er að þjóna okkar félagsmönnum eins vel og kostur er.
