Mikill atgangur var á skrifstofu félagsins í síðustu viku þegar lausar vikur í orlofshúsum félagsins voru boðnar þeim sem fyrstir komu.
Ekki voru þó margar vikur í boði þar sem umsóknir þetta árið voru fleiri en nokkru sinni fyrr en alls bárust 237 umsóknir um þær 130 vikur sem í boði voru í sumar.
Hægt er að skoða hvaða vikur eru enn lausar með því að smella hér.
Þeim félagsmönnum sem hyggja á útilegur í sumar er bent á nýjung hjá orlofssjóði Verkalýðsfélags Akraness. Nú er hægt að fá endurgreiddar allt 5.000 kr. á ári vegna annað hvort útilegukortsins eða gistingar á tjaldstæðum. Þeim sem ætla að nýta þennan styrk er bent á að koma með kvittanir á skrifstofu félagsins.
