Vegna forfalla er nú laus vikan 3. til 10. júlí á Akureyri.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu og þvottavél. Svefnpláss er fyrir fjóra í svefnherbergjum og hægt er að bæta við gestarúmum og barnarúmi. Sængur og koddar eru fyrir sex manns. Á svölum er gasgrill og svalahúsgögn.
Hægt er að skoða fleiri myndir frá Akureyri með því að smella hér.
Hægt er að bóka vikuna á skrifstofu félagsins Sunnubraut 13 eða í síma 430-9900.
