Opið er fyrir umsóknir um orlofshús til 21. apríl, en úthlutun fer fram þann 24. apríl.
Í boði eru 13 vikur og skiptidagar eru á miðvikudögum. Einfalt er að senda inn umsókn á félagavefnum, en þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum
Hér er umsóknareyðublað og bæklingur :)
Þau hús sem eru í úthlutuninni eru :
Fjögur hús í Húsafelli:
BIrkihlíð 6, Hraunbrekkur 2, Ásendi 9 og Ásendi 10
Eitt hús í Kjósinni, þrjú í næsta nágrenni við Akranes; Bláskógar, Efstiás og við Hótel Glym
Þrjár íbúðir á Akureyri og ein í Stykkishólmi
Að ógleymdum bæði Hraunborgum og Ölfusborgum
Svo viljum við einnig minna félagsmenn okkar á að félagsskírteinin eru nú orðin rafræn, en ýmis fyrirtæki hér á Akranesi bjóða félagsmönnum VLFA upp á sérkjör.
Það er einnig frítt fyrir félagsmenn okkar að veiða í hluta af vötnunum í Svínadal.
