Í dag og á morgun stendur yfir trúnaðarmannanámskeið í fundarsal félagsins að Sunnubraut 13. Í dag var farið yfir lestur launaseðla og sátu trúnaðarmenn sveittir yfir launaútreikningum, vaktaálagi og skattþrepum. Á morgun verður farið yfir samskipti á vinnustað og þau skoðuð frá ýmsum hliðum.
Kennarar á námskeiðinu eru þau Guðmundur Hilmarsson og Sigurlaug Gröndal, en þau starfa hjá Félagsmálaskóla Alþýðu.
