Í morgun hófst trúnaðarmannanámskeið á vegum Verkalýðsfélags Akraness. Námskeiðið mun standa framá föstudag.
Fyrir hádegi var fjallað um samskipti og einelti á vinnustöðum, var það í umsjón Aðalheiðar Sigurjónsdóttur. Eftir hádegi fer Haukur Harðarson yfir starf og stöðu trúnaðarmanna.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness leggur mikla áherslu á að trúnaðarmenn félagsins séu vel í stakk búnir til að takast á við þau verkefni sem geta lent inná borði trúnaðarmanna. Námskeið þetta er einn liður í þeirri vinnu.
