Mikil ánægja ríkti með Trúnaðarmannanámskeiðið sem lauk á föstudaginn síðastliðinn. Bæði höfðu kennarar orð á því hversu gríðarlega sterkur og góður hópur þetta væri og einnig var að heyra á nemendum að þeir hafi ekki síður verið ánægðir með góða og uppörvandi fræðslu.
Sterkir trúnaðarmenn eru ómetanlegir í starfi stéttarfélaganna, og kjarni þeirra er alltaf að þéttast og verða virkari. Stefnt er að því að halda framhaldsnámskeið í haust til að halda áfram á þessari braut.
