Fundur verður haldinn með trúnaðarmönnum Norðuráls og formönnum þeirra félaga sem eiga aðild að kjarasamningi við Norðurál á miðvikudaginn nk. Á fundinum mun verða farið yfir þá vinnu sem trúnaðarmenn Norðuráls hafa verið að gera að undanförnu. Ennfremur verður að öllum líkindum ákveðið hverjir munu sitja í samninganefndinni í komandi samningagerð, fyrir hönd stéttafélaganna.
Eins verður að öllum líkindum fjallað um hvernig skuli staðið kosningu, um hvaða vaktakerfi starfsmenn vilja leggja upp með í komandi samningagerð, valið stendur á milli 12 eða 8 tíma vaktakerfa. Það er vilji Verkalýðsfélags Akraness að haldinn verði fundur með starfsmönnum og þessi tvö vaktakerfi kynnt vel, og í framhaldi kosið um hvort kerfið menn vilja. Eins telur félagið að það þurfi á þessum fundi að kynna fyrir starfsmönnum niðurstöðu úr launasamanburði sem gerður var á milli þriggja verksmiðja þ.e Norðurál, Ísal og Íslenska járnblendifélagsins.
