Verkalýðsfélag Akraness býður trúnaðarmönnum félagsins uppá trúnaðarmannanámskeið. Námskeiðið er liður í því að gera trúnaðarmenn hæfari til að takast á við þau verkefni sem tilheyra trúnaðarmönnum.
Námskeiðið byrjar mánudaginn 16. október og lýkur föstudaginn 20. október. Námskeiðið verður haldið í fundarherbergi félagsins að Sunnubraut 13.
Samkvæmt kjarasamningum á hver trúnaðarmaður rétt á að sækja trúnaðarmannanámskeið einu sinni á ári, án skerðingar á dagvinnulaunum.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hvetur alla trúnaðarmenn félagsins til að skrá sig fyrir föstudaginn 13. október. Skráning fer fram á skrifstofu félagsins eða í síma 430-9900 og þar er einnig hægt að fá nánari upplýsingar um námskeiðið.
