Formaður félagsins fundaði með trúnaðartengiliðum Íslenska járnblendifélagsins í dag. Fóru tengiliðirnir yfir stöðuna ásamt formanni og kom skýrt fram hjá trúnaðartengiliðinum að mjög góð samstaða væri á meðal starfsmanna í þessari kjaradeilu. Ef forsvarsmenn Íj koma ekki til móts við kröfur starfsmanna að einhverju leiti þá stefnir í virkilega hörð átök. Þetta var mat trúnaðartengiliðina og tekur Verkalýðsfélag Akraness heilshugar undir þessar skoðanir tengiliðina.
