Það er óhægt að segja að þjónusta við erlenda félagsmenn hafi stóraukist á síðastliðnum þremur árum. Samkvæmt félagskrá VLFA eru um 300 erlendir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness þessa stundina og fer þeim ört fjölgandi.
Skrifstofa félagsins hefur aðgang að mjög öflugum túlki frá Póllandi, því að töluverður hluti af erlendum félagsmönnum talar hvorki íslensku né ensku.
Það er ekki bara Verkalýðsfélag Akraness sem finnur fyrir þessari miklu fjölgun sem orðið hefur á erlendu verkafólki hér á Akranesi á liðnum árum og nægir að nefna sjúkrahúsið hér á Akranesi í þeim efnum.
Umbætur í þágu nýbúa hefur verið sérstakt viðfangsefni vinnuhóps á SHA undanfarna mánuði. Leitað hefur verið lausna til að bæta samskipti og auka öryggi í upplýsingamiðlun við erlenda sjúklinga sem í vaxandi mæli leita eftir þjónustu á SHA.
Stjórn Verkalýðsfélag Akeaness fagnar þessu viðfangsefni hjá SHA og munu þessar umbætur tryggja öryggi erlendra verkamanna hér á Akranesi enn frekar.
Það er engin vafi að þjónustan sem SHA er að veita okkur skagamönnum er ein sú besta sem þekkjast á landinu, enda er afar hæft starfsfólk sem starfar á sjúkrahúsi Akraness bæði læknar sem almennt starfsfólk.
Þessi frétt birtist inná heimasíðu SHA:
|
"Ástæða þess að hópurinn var skipaður er sú að undanfarin misseri hefur erlendum viðskiptavinum SHA fjölgað mjög. Nánast daglega leita einhverjir erlendir einstaklingar sem tala mjög takmarkaða ensku á slysastofu, rannsóknarstofu, til myndgreiningar og á heilsugæslustöð. Einnig er nokkuð um að þeir komi í aðgerð á dagdeild og talsvert er um innlagnir á legudeildir spítalans, t.d. á fæðingadeild.
|
|
r". |
