Undirbúningur að hátíðarhöldum á 1. maí er hafinn. Fundað var á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness í seinni partinn í dag. Það eru öll stéttarfélög á Akranesi sem standa að 1. maí þau eru: Verkalýðsfélag Akraness Kennarafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félag-iðn og tæknigreina, Stak og Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
