Ráðherrar í heimsókn í verksmiðjunni fyrir fáeinum dögum síðanEins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hafa starfsmenn Sementsverksmiðjunnar samþykkt að fallast á tillögur framkvæmdastjóra verksmiðjunnar um að minnka starfshlutfall tímabundið niður í 50%. Þetta gera starfsmenn vegna þeirra erfiðleika sem fyrirtækið á nú við að etja sökum mikils samdráttar á byggingarmarkaði og ekki síður vegna þeirra grunsemda um að Aalborg Portland hafi hér á landi stundað undirboð á sementsmarkaðnum.
Það er staðreynd studd gögnum að danska fyrirtækið hefur selt sement undir markaðsvirði þegar það var að koma undir sig fótunum hér á landi. Rétt er að rifja upp viðtal í Nordjyllands Stiftstidende við forstjóra Aalborg Portland í Danmörku, Sören Vinter, í september 2002 kom fram sú gífurlega áhersla sem fyrirtækið legði á íslenska markaðinn enda hefði það náð 25 prósenta hlutdeild á aðeins tveimur árum. Í viðtalinu segir forstjórinn að hann líti á Ísland sem heimamarkað Aalborg Portland. Hann gekk svo langt að segja að til langs tíma litið yrði ekki pláss fyrir bæði Aalborg Portland og Sementsverksmiðjuna á íslenska markaðnum og Aalborg Portland sæi ákveðin tækifæri í yfirtöku á rekstri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi.
Það er margt sem bendir til þess að það hafi verið tilgangur Aalborg Portland að koma Sementsverksmiðjunni út af markaðnum ef mark er takandi á viðtalinu hér að ofan.
Að sjálfsögðu eigum við Íslendingar að styða íslenska framleiðslu, verja íslensk störf og tryggja það að erlendir aðilar komi ekki hér inn á íslenskan markað og drepi niður íslenska framleiðslu með undirboðum sem einungis yrðu tímabundin.
Hægt er að lesa bréf framkvæmdastjóra Sementsverksmiðjunnar til viðskiptaráðs með því að smella hér.
