Kristinn Örn Jóhannesson, nýkjörinn formaður VRKristinn Örn Jóhannesson, nýkjörinn formaður VR, hefur þegið boð formanns Verkalýðsfélags Akraness um að koma í heimsókn á skrifstofu félagsins á mánudaginn kemur. Eins og flestir vita þá sigraði Kristinn í nýafstaðinni allsherjarkosningu til formanns í VR.
Það er óhætt að segja að veigamikið starf bíði Kristins, en koma hans að formennsku í VR er með mjög líkum hætti og þegar formaður Verkalýðsfélags Akraness tók við starfi sínu árið 2003. En þá fór fram allsherjarkosning í Verkalýðsfélagi Akraness til formanns og reyndar stjórnarinnar í heild sinni, en mikil átök höfðu verið í félaginu um nokkra hríð áður.
Formaður ætlar að miðla til Kristins af sinni reynslu sem formaður félagsins, en vert er að hafa í huga að vart er hægt að líkja saman því starfi sem hann er að taka að sér þar sem um 27.000 félagsmenn eru í VR en í kringum 3.000 í Verkalýðsfélagi Akraness.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness óskar Kristni innilega til hamingju með sigurinn og velfarnaðar í því veigamikla starfi sem hann er nú að taka við og vonast félagið eftir því að eiga gott samstarf við verðandi formann.
