Rúmlega 30% verðmunur var á hæsta og lægsta verði á matvörukörfu samkvæmt verðkönnun sem Verkalýðsfélag Akraness gerði fyrir verðlagseftirlit ASÍ í matvöruverslunum á Akranesi sem var framkvæmd var miðvikudaginn 25. maí síðast liðinn. Dýrust var karfan í Samkaupum- Strax, kr 4.770 en ódýrust í Nettó, kr 3.661. Þrjár verslanir tóku þátt í könnuninni á Akranesi Nettó, Samkaup-Strax og Skagaver. Verslun Einars Ólafssonar neitaði þátttöku.
Karfan í Nettó kostaði 3.661 kr
Karfan í Skagaveri kostaði 4.138 kr
Karfan í Samkaupum-Strax kostaði 4.770 kr
Stjórn félagsins hefur ákveðið að taka upp reglulegt verðlagseftirlit í verslunum á Akranesi, enda mikið hagsmunamál fyrir félagsmenn.
Hægt er að skoða alla verðkönnuna með því að smella á Verðkönnun
