Rétt í þessu lauk formaður félagsins við að heimsækja alla leikskólana á Akranesi sem eru Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel. Tilefni heimsóknanna var Sjómannadagurinn sem er næstkomandi sunnudag en það er hefð hjá Verkalýðsfélagi Akraness að heimsækja öll leikskólabörn og gefa þeim harðfisk í tilefni dagsins.
Stjórn félagsins er það mikill heiður að geta glatt leikskólabörn á Akranesi með þessum hætti og minnt þau á mikilvægi sjómannsstarfsins. Það skein mikil gleði úr hverju andliti og kunnu börnin svo sannarlega að þakka fyrir sig því sum þeirra tóku lagið fyrir formanninn sem honum leiddist svo sannarlega ekki. Myndir frá deginum má sjá hér.
