Í byrjun þessa árs gerði Verkalýðsfélag Akraness mjög góðan viðskiptasamning við Landsbankann á Akranesi. Í einu ákvæði samningsins er kveðið á um að Landsbankinn greiði 500 þúsund krónur til Verkalýðsfélags Akraness ár hvert á samningstímanum.
Stjórn félagsins ákvað í samráði við Landsbankann að þessum fjármunum skuli varið til góðgerðamála. Á stjórnarfundi sem haldinn var 14. desember sl. var ákveðið hvaða aðilar skyldu fá styrk úr þessum sjóði félagsins í ár. Þeir sem fá styrk í ár eru eftirfarandi:
- Styrktar- og líknarsjóður Akraneskirkju 100 þúsund krónur. (Eyrnamerkt þeim sem minna mega sín fyrir þessi jól)
- Björgunarfélag Akraness 100 þúsund krónur.
- Fjöliðjan 100 þúsund krónur.
- Fyrr í vetur var unglingadeild SÁÁ veittur 100 þúsund króna styrkur.
- Einnig fengu önnur góðgerðafélög smærri styrki úr þessum sjóði.
Nánar verður fjallað um þessar styrkveitingar Verkalýðsfélags Akraness í félagsblaðinu sem kemur út á fimmtudaginn kemur.
