Fundað var um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs á föstudaginn. Stéttarfélögin lögðu fram kröfur sínar á fundinum og gerði formaður félagsins grein fyrir þeim. Kröfurnar eru í samræmi við það sem um samdist við Íslenska járnblendið. Verkalýðsfélag Akraness á eftir að semja við tvö fyrirtæki á Grundartangasvæðinu þ.e Klafi og Fang. Verkalýðsfélag Akraness hefur miklar áhyggjur yfir þeim seinagangi sem hefur einkennt allt í kringum þessar samningaviðræður. Því eins og áður hefur komið hér á síðunni, þá vilja starfsmenn og stéttarfélagið að eitthvað fari að gerast í þessum samningaviðræðum. Kjarasamningar þessara fyrirtækja runnu út 1. desember 2004. Ef ekkert markvisst gerist í næstu viku mun Verkalýðsfélag Akraness vísa deilunum til ríkissáttasemjara.
