Verkalýðsfélag Akraness hefur gríðarlega miklar áhyggjur vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem er upp komin hjá Laugafiski. Eins og fram kom í frétt sem birtist í Skessuhorni 4. maí þá hefur heilbrigðisnefnd Vesturlands vítt Laugafisk vegna kvörtunar um lyktarmengun, og var fyrirtækinu gert að draga úr framleiðslu sinni um 50% yfir sumarmánuðina. Verkalýðsfélag Akraness vill ekki hugsa það til enda ef aðgerðir heilbrigðisnefndar Vesturlands gera það að verkum að starfsemin hjá Laugarfiski leggist af hér á Akranesi. Það eru um 35 félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness sem starfa hjá Laugafiski, þar af eru um 15 konur. Verkalýðsfélagið hefur sett sig í samband við forsvarsmenn fyrirtækisins og lýst yfir áhyggjum á þeirri stöðu sem upp er komin. Verkalýðsfélag Akraness veit fyrir víst að fyrirtækið er að leita allra leiða til að finna lausn á þessu hvimleiða vandamáli. Hér verða allir að taka höndum saman og finna lausn á þessu vandamáli. Það eru mjög miklir hagsmunir í húfi fyrir okkur Akurnesinga að farsæl lausn finnist sem allra fyrst. Ekki mun Verkalýðfélag Akranes láta sitt eftir liggja til aðstoðar í þeim málum.
Ekki ætlar félagið að gera litið úr þeim kvörtunum sem komið hafa frá nágrönnum nema síður sé. Það eru samt sem áður einu sinni svo að við lifum á sjávarfangi og við búum þar sem fiskvinnsla er mjög stór þáttur í okkar atvinnulífi.
